|
Hvernig sæki ég um .is lén?
Þú hefur samband við okkur, við setjum upp fyrir þig vefsvæði og setjum upp nafnaþjóna. Þegar við erum búnir að því þá getur þú sótt um lénið hjá Isnic. Þar gefur þú upp nafnaþjónana okkar, sem vísa á heimasvæðið þitt hjá okkur.
Hvað kostar .is lén?
Upphafsgjaldið hjá Isnic er 12.450kr, með vsk. Gildir það í eitt ár. Kostnaður við rekstur á .is léni er svo 7.918kr, árlega eftir fyrsta árið.
Ef ég kaupi heimasíðu hjá ykkur, get ég þá sjálfur breytt henni?
Já, þú færð allan þann aðgang sem þú vilt. Við mælum þó með því að þú fáir einfaldan aðgang, þ.e. að þú getir unnið í efninu í framhluta kerfisins og þannig breytt öllum texta og sett inn nýjar fréttir. Við getum einnig veitt þér aðgang að bakhlutanum en það er á þína ábyrgð.
Hvað með tölvupóst?
Við setjum upp tölvupóst fyrir þig. Tölvupóstinn getur þú svo nálgast með tölvupóstforritinu þínu, s.s. outlook eða outlook express. Þú getur einnig skoðað póstinn þinn á netinu, www.léniðþitt.is/postur
Hver er árlegur kostnaður eftir fyrsta árið?
Það kostar aðeins 19.900kr,- auk vsk að hýsa síðuna og tölvupóstinn hjá okkur, í 12 mánuði.
Hver er heildarkostnaðurinn ef ég vil fá .is lén?
Ef við búum til heimasíðuna og vistum hana og tölvupóstinn, þá er heildarkostnaður með vsk og með .is léni um 109 þús*. Hýsing á heimasvæði, tölvupósti og nafnaþjónum í 12 mánuði er innifalin í þessu verði.
Árlegur kostnaður við rekstur á heimasvæði og .is léni er svo um 32.700* kr,- með vsk, þ.e. hýsing í 12 mánuði + árgjald til Isnic vegna .is léns.
*Athygli skal vakin á því að þessi verð eru með vsk.
|